Stuttmyndahátíðin Stulli mun fara fram laugardaginn 3. desember kl. 13:00 en í ár er það Borgarbíó sem mun hýsa keppnina. Þemað í ár er „grín-hrollvekja“ en að sjálfsögðu verður einnig keppt í opnum flokki þar sem athyglisverðasta myndin verður verðlaunuð eins og undanfarin ár.
Verðlaunin í ár eru ekki af verri endanum en fyrir bestu þematengdu myndina verða verðlaunin upptökuvél ásamt því að Ölgerðin mun sjá til þess að viðkomandi gangi út klyfjaður af Pepsi. Einnig verða veitt vegleg verðlaun í opnum flokki.
Reglur varðandi þátttöku:
Keppendur verða að vera á aldrinum 14-25 ára. Engin lágmarkslengd er á myndum en hámarkslengd er 7 mínútur. Skráningarfrestur í Stulla er til og með 1. Desember
Skráning fer fram í gegnum netfangið bhstefansson@akureyri.is og í síma 460-1240.